15. september 2008 klukkan 18:53
Hola linda....
Lífið hérna á Kitebeach rennur framhjá manni og nóg að gera.
Nýjasta nýtt er að ég var bitin, sem er ekkert nýtt, en í þetta skiptið á stóru tánna á vinstri fæti og fékk svo sýkingu í bitið :/ ekki nógu gott... er búin að prufa tannkrem, vinegar (man ekki íslenska heitið, er strax farin að gleyma móðurtungunni), Hydrogen Peroxide, þetta kremið og hitt kremið og endaði loksins á að fara til læknis í morgun !
Hann sagði, velkomin í miðjarðarhafið !
(By the way, hann er sjálfur frá Indlandi) Svo fékk ég krem og sterkari lyf en má samt búast við að það taki heila 10 daga fyrir þetta að gróa og hverfa alveg :/
Frekar fúlt þar sem ég er bókstaflega haltrandi um hérna með grysju á fætinum sem lítur frekar hallærislega út. Fólki finnst samt mjög gaman að giska á hvernig bit þetta er, tillögurnar eru eftirfarandi:
1) maur
2) stóru svörtu maurarnir
3) vespa
4) könguló (æj, æj)
Alla vega, þá er þetta helv. vont þar sem ég er búin að vera með hita og vakna við sársaukann á nóttunni þegar verkjalyfin hætta að virka, eins gott að maður endi nú ekki sem einhver pillupoppandi rugludallur eftir þetta.
Jæja, tvöfaldur útborgunardagur í dag svo það er nóg að gera, borga öllu föstu starfsfólki og svo kennurunum í skólanum :)
Hasta pronto,
Hrafnhildur Lilja
Ps. takk fyrir commentin, endilega verið dugleg að commenta svo ég verði dugleri að bloggar ;þ
Ps.2
Dagný, til hamingju með flutningana, væri frábært að heyra í þér á skype...
Ps.3 Sessa, næ aldrei á þér á skype, hvað er málið sæta?
Ps.4 Rubia, gracias para llamarme y todo, hasta muy pronto guapa ;þ
Ps.5 Mamma, stolt af þér að skrifa ;)