Aðalvalmynd

Könnun

Hvað heldur þú að hafi bitið mig?

Auglýsing

Teljari

  • Heimsóknir í dag: ...
  • Þennan mánuð: ...
  • Frá upphafi: ...

Ike er farinn

07. september 2008 klukkan 13:54
Hæ víkingarnir mínir

Fellibylurinn Ike er farinn framhjá DR og ja, við fengum fullt af rigningu og smá vind í gær og núna er skýjað og vindur en ekkert meira en það :)
Reyndar heyrði ég í morgun að það sé mun hvassara í öðrum bæ hérna nálægt en ég virðist búa á stað sem er mjög heppinn og hingað koma fellibylirnir venjulega ekki :D

Rafmagnið er búið að vera mjög kenjótt undanfarið svo ég hef ekki getað verið lengi í sambandi en vonandi fer það að breytast aftur svo ég nái nú að spjalla við ykkur þarna heima, er farin að þrá fréttir af ykkur...

Takk fyrir kveðjurnar elskurnar mínar,
Hrafnhildur Lilja
estrella
Hrafnhildur Lilja Georgsdóttir
Hanna systir skrifar ...
Það er gott að Ike hafi ekki komið til ykkar :D
Það er allt gott að frétta af okkur, höfum það rosa gott :)

Heyrumst fljótlega
kv. Hanna:)
07. september 2008 klukkan 18:53
sessan skrifar ...
 
Ég er ekkert smá ánægð að heyra að Ike er farinn fram hjá þér, þú hefur ekki verið mjög gestrisin við hann ;)

Hlakka til að heyra frá þér

kveðjur frá öllum,
Sessa
07. september 2008 klukkan 20:35
Fannar Karvel skrifar ...
Auðvitað stökktir þú honum á flótta, ekki við öðru að búast :D

Hlustandi á Hoppípolla og vona að þú hafir það sem allra best í paradís.
07. september 2008 klukkan 22:31
Hanna systir skrifar ...
Halló systa :)
Hvað er að frétta?
Langt síðan maður hefur heyrt í þér.

Allir biðja að heilsa,
söknum þín..
kv. Hanna systir:)
13. september 2008 klukkan 02:32
Dagný Thelma skrifar ...
 
hæ skvísa!!! ég er allveg að fylgjast með þér:D ég ætlaði bara að kvitta fyrir innlitið, vona að þu hafir það sem allra allra best og farir vel með þig!! Allt gott að frétta héðan, við vorum að flytja úr bænum og í kópavoginn þurftum að stækka:( ekki eins skemmtilegt hverfi en æðisleg íbúð! Ertu ekkert að fara að koma í heimsókn á klakann??
14. september 2008 klukkan 19:27

Skrifa athugasemd

Ferðalagið mikla

Um ferðalagið...

Ég er að ferðast án tiltekinnar stefnu eða endadagsetningar.
Ég byrjaði á að yfirgefa Ísland þann 3. apríl 2008, fór til Ástralíu í rúma viku og eftir það til Dubai, UAE í þrjá mánuði. Núna er ég stödd í Dóminíska Lýðveldinu að stjórna litlu hippa hóteli. Ég bý á strönd sem heitir Kitebeach, Cabarete og er fræg fyrir íþrótt sem heitir brimbrettasvif "kitesurfing" eða "kiteboarding".
Ég verð hér alla vega út janúar 2009 en þá endurskoða ég málin því eftir það er allt óákveðið...

Ef þig langar að hitta mig einhvers staðar er um að gera að hafa samband og ég reyni mitt besta til að hitta þig á einhverjum skemmtilegum stað í heimunum ;)

Innskráningar kubbur