Aðalvalmynd

Könnun

Hvað heldur þú að hafi bitið mig?

Auglýsing

Teljari

  • Heimsóknir í dag: ...
  • Þennan mánuð: ...
  • Frá upphafi: ...

Hvernig bit ???

15. september 2008 klukkan 18:53
Hola linda....

Lífið hérna á Kitebeach rennur framhjá manni og nóg að gera.
Nýjasta nýtt er að ég var bitin, sem er ekkert nýtt, en í þetta skiptið á stóru tánna á vinstri fæti og fékk svo sýkingu í bitið :/  ekki nógu gott... er búin að prufa tannkrem, vinegar (man ekki íslenska heitið, er strax farin að gleyma móðurtungunni), Hydrogen Peroxide, þetta kremið og hitt kremið og endaði loksins á að fara til læknis í morgun !
Hann sagði, velkomin í miðjarðarhafið !
(By the way, hann er sjálfur frá Indlandi) Svo fékk ég krem og sterkari lyf en má samt búast við að það taki heila 10 daga fyrir þetta að gróa og hverfa alveg :/
Frekar fúlt þar sem ég er bókstaflega haltrandi um hérna með grysju á fætinum sem lítur frekar hallærislega út. Fólki finnst samt mjög gaman að giska á hvernig bit þetta er, tillögurnar eru eftirfarandi:
1) maur
2) stóru svörtu maurarnir
3) vespa
4) könguló (æj, æj)

Alla vega, þá er þetta helv. vont þar sem ég er búin að vera með hita og vakna við sársaukann á nóttunni þegar verkjalyfin hætta að virka, eins gott að maður endi nú ekki sem einhver pillupoppandi rugludallur eftir þetta.

Jæja, tvöfaldur útborgunardagur í dag svo það er nóg að gera, borga öllu föstu starfsfólki og svo kennurunum í skólanum :)

Hasta pronto,
Hrafnhildur Lilja

Ps. takk fyrir commentin, endilega verið dugleg að commenta svo ég verði dugleri að bloggar ;þ

Ps.2
Dagný, til hamingju með flutningana, væri frábært að heyra í þér á skype...

Ps.3 Sessa, næ aldrei á þér á skype, hvað er málið sæta?

Ps.4 Rubia, gracias para llamarme y todo, hasta muy pronto guapa ;þ

Ps.5 Mamma, stolt af þér að skrifa ;)
Hrafnhildur Lilja Georgsdóttir
Rósa skrifar ...
Hei sæta, rosa gaman að sjá blogg frá þér. Það er sko brjálað að gera hjá mér. Kellan er að taka 12 fög og 24 einingar svo það er nóg að gera. 2 fögin eru reyndar bara íþróttir og gefa eina einingu hvor. Svo það er fullur skóli og svo fjarnám. Mér gengur alveg rosalega vel en sem komið er.
Katrínu gengur rosa vel í skólanum líka og nóg að gera hjá henni. En annars eru bara allir hressir og kátir.

Bestu og saknaðar kveðjuð Rósa
16. september 2008 klukkan 10:15
Sessa skrifar ...
 
hæ sætust já ég hef ekkert verið við tölvuna en ég er samt heima lasin með hana Lungnabólgu í heimsókn.... sé þig vonandi fljótlega hérna...

Kveðja frá öllum
16. september 2008 klukkan 16:48
Fannar Karvel skrifar ...
Sé þig fyrir mér, skakklappast í sandinum. Pínu fyndið en hey, that's the risk you get from living in paradise. But a small price :D

Alltaf gaman að heyra í þér!
17. september 2008 klukkan 09:41
Steinunn Birna skrifar ...
Hæ sæta mín

Sorry hvað ég er búin að vera ódugleg við að kvitta. Þetta bit hljómar virkilega óspennó ...bjakk !! Allt í himnasælu hér heima eins og vanalega =) Ótrúlega hamingjusöm bara, byrjuð að skrifa ritgerðina, er í sirka 120% vinnu með og svo er fjarnámskúrs að byrja í lok sept :þ Vona að þetta gangi allt saman.
Ætla að skella mér svo norður til brósa með stefáni og vinkonu minni um helgina og skella mér í rafting í austari jökulsá í tilefni ammælis;o) Hafðu það ógó gott elskan og láttu heyra oftar í þér...sé þig aldrei á msn...!!!
17. september 2008 klukkan 11:58
Hanna systir skrifar ...
Hæhæ ´
Ekki gott með tánna, vonandi lagast hún fljótt.
Ég giska ekki á könguló,, svona þín vegna ;)

Heyrðu sorry, ég varð að þjóta áðan.. leiðinlegt að hafa ekki náð að spjalla á skype:/

En þetta með vinnuna..
mér líður eitthvað svo vel og lífið er betra nú sem aldrei fyrr
svo að ég ákvað að skella mér í vinnu :D
Fékk vinnu í búðinni á kassa, er á virkum dögum frá eitt til hálf fjögur.
Fór í dag og var frá 9-hálf tvö, til að læra á þetta allt saman og gekk líka rosa vel.
Fer svo í fyrramálið frá 10-hálf fjögur, verð svo eftir það alltaf frá eitt til hálf fjögur:)

Ég er rosa stolt af mér :D híhí

Já vertu svo dúleg að blogga elsku systa, og ég skal vera dugleg að kvitta:)

Það gengur allt rosalega vel hérna hjá okkur litlu famelíunni, bara gæti ekki verið
betra.
Danni er að vinna hjá pabba og þeir virðast ná vel saman þrátt fyrir aldur og fyrri störf.. múhaahahahaha :)
Líney er alltaf jafn yndisleg og falleg og hún brosir bara framan í heiminn þessi elska :)

Hafðu það gott elskan okkar,
kv. Hanna systir
17. september 2008 klukkan 20:01
sessa skrifar ...
 
hver er þessi ljóska sem átti að fá skilaboðin þarna uppi ?

kv. sessa
18. september 2008 klukkan 10:05
Dagný Thelma skrifar ...
 
hæ sæta! ég þarf að fara að drösla skypinu inn í tölvuna mina svo eg nái nú að heyra i þer, eg er alveg anti tölvunörd heheheh:) Typiskt að fá sykingu i bitið og vera í útlöndum........en það er lika merkilegt hvað maður lætur ekkert buga sig þegar maður er á öðrum slóðum það liggur við að maður gangi um á annari löppinni með dúndrandi hausverk og syrkingu i augunum áður en maður hugsar um að taka því rólega hehehehe
18. september 2008 klukkan 18:19

Skrifa athugasemd

Ferðalagið mikla

Um ferðalagið...

Ég er að ferðast án tiltekinnar stefnu eða endadagsetningar.
Ég byrjaði á að yfirgefa Ísland þann 3. apríl 2008, fór til Ástralíu í rúma viku og eftir það til Dubai, UAE í þrjá mánuði. Núna er ég stödd í Dóminíska Lýðveldinu að stjórna litlu hippa hóteli. Ég bý á strönd sem heitir Kitebeach, Cabarete og er fræg fyrir íþrótt sem heitir brimbrettasvif "kitesurfing" eða "kiteboarding".
Ég verð hér alla vega út janúar 2009 en þá endurskoða ég málin því eftir það er allt óákveðið...

Ef þig langar að hitta mig einhvers staðar er um að gera að hafa samband og ég reyni mitt besta til að hitta þig á einhverjum skemmtilegum stað í heimunum ;)

Innskráningar kubbur