Aðalvalmynd

Könnun

Hvað heldur þú að hafi bitið mig?

Auglýsing

Teljari

  • Heimsóknir í dag: ...
  • Þennan mánuð: ...
  • Frá upphafi: ...

Sorgartíðindi - Mournful tidings

23. september 2008 klukkan 15:33
Þegar ég sit hérna fyrir framan tölvuskjáinn þá vantar mig orð. Mig skortir allt til að koma því sem mig langar til skila.

Í dag fengum við þessar hörmulegu fréttir að hún Hrafnhildur okkar væri dáin.

Það er lítið sem orð geta bætt og skilningur minn á því af hverju eða frekar hvernig svona hlutir geta gerst er enginn.

Kæru vinir sem lesið þetta, ég votta ykkur samúð mína. Það er skelfilegt að sjá á eftir svona góðri stelpu sem hún var og ekkert, hvorki tími né orð geta breytt því.

kveðja
Helena
estrella


While sitting here in front of the computer my words escape me. Nothing comes to mind to try to get to grips with what happend.

Today we got the news that our dear friend Lilja is gone.

Dear friends, my heart goes out to you all. This is a terrible tradigy and having to say goodbye to such a great person is hard, impossible maybe, and nothing, not time or words will ever change that.

with regards
Helena
estrella
Hrafnhildur Lilja Georgsdóttir
Jenný skrifar ...
 
samúðarkveðjur.....
23. september 2008 klukkan 16:09
Dagný Thelma skrifar ...
 
æ elsku hrafhildur mín ég á eftir að sakna þín mikið og guð einn veit að þú færð gott pláss þarna uppi því betri stelpu er erfitt að finna! og því skilur maður ekki hvernig nokkur maður getur gert nokkuð slæmt á þinn hlut. Ég vil líka koma því frá mér að ég bið innilega að heilsa fjölskyldu hrafnhildar og votta þeim mína dypstu samúð á þessum erfiða tíma. Elsku lena ég vill líka votta þér samúð mína, Hrafnhildur hafði mikið dálæti á þér þú varst henni sönn og góð vinkona
kveðja Dagný
23. september 2008 klukkan 16:41
Hanna systir skrifar ...
Elsku Hrafnhildur, fallega yndislega systir mín!!!

Ég get ekki skilið afhverju þú varst tekin frá okkur,
þú varst svo lífsglöð og skemmtileg og gerðir aldrei flugu mein!!
Þú varst ung kona í leit að ævintýrum og hafðir gaman að lífinu.
Það er ekki sanngjarnt að þú hafir verið tekin svona frá okkur öllum sem elskuðum þig og eitt er víst að þú áttir þetta ekki skilið!!!
Það er svo sárt að þú sért farin frá okkur elsku Hrafnhildur mín :'(
Lífið verður aldrei eins án þín.
Ég mun ylja mér við góðar minningar um yndislega systur og góða vinkonu.

Hvíldu í friði fallegi engillinn minn,
ég trúi því að afi Krummi, Öddi frændi og allir hinir hafi tekið á móti þér þar sem þú ert núna.

Ég elska þig og mun ALLTAF gera elsku Hrafnhildur mín.

Þín systir Hanna Stella.
23. september 2008 klukkan 16:49
Fannar Karvel skrifar ...
Hvíldu í friði Hrafnhildur mín, þar sem þú ert núna eru allir sem þú ert búin að sakna og við sem eftir sitjum og grátum eigum eftir að hitta þig þar aftur.

Vaktu yfir okkur hvar sem þú ert.

Ég á aldrei eftir að gleyma þér...
23. september 2008 klukkan 17:07
Lilja Dögg skrifar ...
 
Kæra fjölskylda

Ég votta ykkur mína dýpstu samúð á þessum erfiðu tímum..
23. september 2008 klukkan 17:51
Elsku Líney, Giggi, Hanna Stella, Alvilda, amma Lilja og Líney litla.
Vildum votta ykkur samúð okkar, við hugsum til ykkar héðan frá Danmörku. Ég hef fulla trú á því að Krummi og Öddi hafi tekið vel á móti henni Hrafnhildi.
Bestu kveðjur, Freygerður, Hemmi og stelpurnar.
23. september 2008 klukkan 18:01
Ellen Svava skrifar ...
 
Þetta eru hörmulegar fréttir :( hver gerir svona, tekur svona hressa og skemmtilega stelpu frá okkur...
Ég votti alla mína samúð til fjölskyldu Hrafnhildar.

Kveðja Ellen
(kynntist Hrafnhildi þegar ég byrjaði í sporthúsinu)
23. september 2008 klukkan 18:53
Berglind skrifar ...
 
Elsku Hrafnhildur, þetta er ekki alveg að skiljast hjá manni ennþá. Ég veit að vel var tekið á móti þér þegar þú fórst og að þú hefur ekki lengi verið ein. Ég þekkti enga manneskju sem kunni að lifa lífinu eins mikið til fulls og þú og ég dáðist alltaf að þér...

Elsku Líney, Giggi, Lauga og fjölskyldur, Lena og allir vinir Hrafnhildar, votta ykkur mínar dýpstu samúðarkveðjur. Hugur minn er hjá ykkur á þessari skelfilegu stundu.

Saknaðarkveðja,
Berglind bekkjarsystir
23. september 2008 klukkan 19:24
Kveð þig með harm í hjarta, hafðu þökk fyrir öll fallegu brosin og kveðjurnar í Sporthúsinu.
Bið góðann Guð að taka þér með opnum örmum og varðveita vel.

Elsku fjölskylda og aðrir aðstandendur, mig skortir orð til að lýsa harmi mínum yfir hræðilegu fráfalli einstakrar stúlku og kunningja.

Ég hugsa hlýtt til ykkar allra.
23. september 2008 klukkan 21:10
Þrymur Sveinsson skrifar ...
 
Kæra fjölskylda.

Hvílík sóun á fallegu lífi sem átti eftir að gera svo margt fallegt og mikið.

Votta ykkur mína dýpstu samúð.

Þrymur Sveinsson
23. september 2008 klukkan 21:10
Þröstur Jón skrifar ...
 
Elsku Hrafnhildur mín.

Hugur okkar allra er hjá þér og þínum nánustu nú á þessum erfiðu tímum.

Hvernig getur svona lífsglöð og yndisleg manneskja horfið á braut?
Líf okkar verður ekki samt án þín!

Mér finnst ég þekkja þig svo vel þrátt fyrir að hafa aðeins kynnst þér í nokkra mánuði. Þú varst svo opinn og yndisleg og ávallt til í slaginn.

Þú hafðir þann einstaka eiginleika að fylla alla sem urðu þeirrar lukku aðnjótandi að kynnast þér gleði og hamingju! Það skipti engu máli í hversu vondu skapi maður var þegar maður hitti þig. Þegar maður sá sakleysislegt og fallegt brosið, þá hlýnaði manni um hjartarætur og gat ekki annað en brosað!

Takk fyrir allt sem þú hefur gert fyrir mig elsku Hrafnhildur.

Það máttu vita að þú átt marga vini hér sem sakna þín sárt, mun fleiri en þig grunar!

Ég vil votta öllum ættingjum og vinum samúð mína.

Kveðja,
Þröstur Jón, vinur og samstarfsfélagi
23. september 2008 klukkan 21:28
Samúðarkveðjur til ykkar allra ég er harmi slegin yfir þessum fréttum og mig skortir orð ég bið fyrir ykkur öllum fjölskyldu Hrafnhildar sem var henni svo kær og henni Lenu okkar Kveðja Emma.
23. september 2008 klukkan 21:55
Lucy Anna skrifar ...
Elsku Hrafnhildur frænka mín.
Ég get ekki hætt að hugsa um þitt fallega bros sem ég fékk hvern einasta morgun frá þér i sporthúsinu kl 6 á morgnanna, þú hreynlega lýstir allt upp í kringum þig. þótt að maður hafi komið úldinn og meygglaður og pirraður i ræktina eldsnemma á morgnana þá var ekki annað hægt en að brosa út af eyrum þegar maður sá þig :) hehe Alltaf svo hress og kát og brosmild. Ég get ekki trúað því að þú hefur verið tekin frá okkur. En eitt veit ég að það hefur verið tekið vel á móti þér þangað sem þú fórst.

Elsku Hanna Stella, Alvilda, Líney mist, Líney. Georg og fleiri. Við vottum ykkur okkar dýpstu samúð. Hugur okkar er hjá ykkur og ég sendi sterka strauma.
kv. Lucy, Palli, Rakel María og Keli
23. september 2008 klukkan 22:20
Anna Margrét skrifar ...
Elsku Hrafnhildur hvíldu í friði;*
ég skil ekki hvernig það er hægt að taka svona góða og yndislega stelpu frá okkur..
og hvernig er hægt að gera svona lagað :(

Elsku fjölskylda Hrafnhildar og vinir eg votta ykkur alla mína dýpstu samúð
og meigi guð vera með ykkur um þessa hræðilegu stund og eg veit að Hrafhildur á eftir að passa ykkur öll<3

kveðja Anna
23. september 2008 klukkan 22:36
Klara Sv. skrifar ...
 
Elsku Líney, Giggi og fjölsk.

Ég vil votta ykkur öllum mína dýbstu samúð, vegna fráfalls Hrafnhildar Lilju.
Megi guð gefa ykkur styrk til að takast á við erfiða tíma.

Kveðja, Klara Sv.
23. september 2008 klukkan 23:15
Sveinn A Gunnarsson skrifar ...
 
Elsku Hrafnhildur frænka mín

ég veit ekki hvað ég á að segja hreinlega, ég er enn í sjokki síðan að Mamma hringdi í mig fyrr í gær morgun og sagði mér þessa frétt, ég sit hérna steinrunnin og veit ekki hvort ég á að gráta eða öskra eða hreinlega bæði. Þetta er eins og slæmur draumur og ég bíð eftir að vakna af honum að frænka mín sem ég er búin að þekkja nær alla mína ævi birtist aftur heima í Ólafsffirði um jólin heima hjá Lilju frænsku brosandi.

Ég get ekki hætt að hugsa um þig og fjölskylduna alla, Líney frænku og Gigga, Hönnu Stellu, Líney litlu og Alvildu og auðvitað Lilju frænku og hvernig ykkur hlítur að líða, ég get bara ýmindað mér að sama hvað ég finn fyrir mikilli sorg er það ekkert á við ykkar.

Ég vona innilega að þar sem þú ert núna að þú ert hamingjusöm og situr og hlærð hjá Ödda og Krumma frænda.

Ég mun ávallt halda í minningarnar af þér og segja henni Kristjönnu minni reglulega frá hve hún var heppinn að eiga svona góða frænku.

Innilegar samúðarkveðjur og hlýjar huagsanir frá mér og Kristjönu Diljá.

Sveinn Aðalsteinn.
24. september 2008 klukkan 03:08
Hrafnhildur skrifar ...
 
Elsku Nafna

Ég trúi því ekki enn að ég fái aldrei að sjá þig framar. Björtu brosin, hlý faðmlögin og bara geta spjallað við þig um daginn og veginn. Ég sakna þín svo mikið að það er að slíta mig í sundur en ég trúi því að þér líði vel þar sem þú ert, umkringd öllum sem þú hefur misst og að þar takir þú vel á móti mér þegar fram líða stundir. Ég treysti á það! Ég mun passa upp á að strákarnir mínir viti um þig og hversu vænt þér þótti um þá, Dagur fær að vita um kollhnísakennsluna sem ég veit ekki hvort skemmti sér betur við þú eða hann! Þú verður í hjörtum okkar um ókomna tíð. Takk fyrir að hafa mig sem hluta af þínu lífi og við sjáumst síðar.

Ég elska þig nú og ég mun elska þig alltaf.

Ástar og saknaðar kveðjur
Þín Nafna

Innilegar samúðarkveðjur til allra sem þekktu Hrafnhildi þá sérstaklega fjölskyldu hennar og vina.
24. september 2008 klukkan 07:56
Sirrý skrifar ...
 
Kæra fjölskylda og vinir,
ég votta ykkur mínu dýpstu samúð á þessum hryllilegu erfiðum tímum.
Ég átti mjög erfitt með að trúa að þetta væri hún Hrafnhildur, en ég kynntist henni í gegnum þolfimiakademiuna.

Guð styrki ykkur á þessum tímum.
24. september 2008 klukkan 09:06
Elsku hjartans Hrafnhildur.

Ég trúi ekki að þú sért farinn.

Ég man í fyrra þegar þú komst til mín í Þolfimiakademíuna og á hátíðina.
Ég tók strax eftir því hve kraftmikil, jákvæð, brosmild og yndisleg þú ávallt varst. Man þegar þú hringdir í mig og varst full tilhlökkunar að fara í heimsreisuna þína

Langar að votta fjölskyldu þinni, aðstandendum og vinum þínum samúð mína.
Megi Guð ávallt vera með þér og blessa þig og styrkja fjölskyldu þína á þessum sorgartímum.

Þín er sárt saknað.
Kveðja Unnur Pálmarsdóttir
24. september 2008 klukkan 11:07
ein ókunnug skrifar ...
 
kæra fjölskylda.
Ég votta ykkur mína innilegustu samúð á þessum skelfilegu tímum.
Guð veri með ykkur!
24. september 2008 klukkan 12:54
Þórdís Ýr skrifar ...
 
Vil votta fjölskyldunni mínar samúðarkveðjur

ég kynntist Hrafnhildi á Þjóðhátíð í Eyjum 2007 þegar hún og vinkona hennar komu færandi hendi með eftirrétt á grillið.. eftir það voru þær einar af okkur :) þegar ég byrjaði að mæta í ræktina grautfúl eldsnemma á morgnanna rakst ég aftur á hana og alltaf jafn brosmild og sælleg! þannig að það má segja að hún hafi vakið mann áður en maður fór að þykjast sprikla e-ð niðrí sal!!

Hrafnhildur var yndisleg og trúi ég að það hafi verið tekið vel á móti henni - enda ekki annað hægt!

þin verður sárt saknað af okkur í strætónum í eyjum!

kv. frá mér og srætóstrákunum :)
24. september 2008 klukkan 13:25
Soffía Höskuldsdóttir skrifar ...
 
Elsku Hrafnhildur eða Hrabba eins og við kölluðum þig. Ég vil þakka þér fyrir að fá að kynnast þér og alla þá umburðarlyndi að leifa syni mínum honum Ævari að vera hjá ykkur öllum stundum í sveitinni þegar þú bjóst með Óla bróður. Fjölskyldu Hrafnhildar Lilju votta ég mínar innilegustu samúðar. Ég bið góðan Guð að styrkja ykkur í þessari miklu sorg.
Kveðja Soffía Höskuldsdóttir (fyrverandi mákona)
24. september 2008 klukkan 15:01
Jónína Björnsdóttir skrifar ...
 
Kæru Líney, Gíggi, Hanna Stella, Alvilda María, Liney Mist og Lilja, okkar innilegustu samúðarkveðjur til okkar allra. Hugur okkar dvelur hjá ykkur á þessum erfiða tíma. Minningin um Hrafnhildi Lilju mun lifa um ókomna tíð.
Bestu Kveðjur Jónína, John Snorri, Halla Karen og Ragnhildur Vala.
24. september 2008 klukkan 19:42
Birgir Jóhannsson skrifar ...
 
Ég votta mína innilegustu samúðarkveðjur á alla fjölskylduna. Þekkti Hrafnhildi ekki mikið en ég veit að hún var ótrúlega hlý og góð manneskja sem átti þetta svo alls ekki skilið.

Guð styrkir ykkur á þessum tímum og ég mun hugsa hlýtt til fjölskyldu þinnar.

Kveðja, Birgir
24. september 2008 klukkan 21:55
Agga Hrönn skrifar ...
 
Kæra fjölskylda og vinir Hrafnhildar Lilju.

Mig setti hljóðan við þessi skelfilegu tíðindi og skortir orð til að lýsa þeim tilfinningum sem fóru um mann. Eitt er víst að ykkar miissir er mikill.

Ég bið Guð að styrkja ykkur á þessum erfiðu tímum.
Votta öllum aðstendendum mína innilegustu samúð.

Kveðja.
Agga Hrönn
24. september 2008 klukkan 22:40
Birna Björnsdóttir skrifar ...
 
Vil votta fjölskyldu og vinum Hrafnhildar mína dýpstu samúð. Megi góður guð styrkja ykkur í þessum þungu og erfiðu sporum.

megi minning um góða, glaða og fallega stúlku lifa í hjörtum okkar allra um ókomna tíð.


Samúðarkveðja frá Dansskóla Birnu Björnsdóttur

Birna Björnsd.
25. september 2008 klukkan 11:27
Helgi skrifar ...
 
Kæra fjölskylda.ég votta ykkur samúð mína.guð styrkir ykkur á þessum erfiðum tímum.
25. september 2008 klukkan 21:05
Björg Ey. skrifar ...
 
votta aðstandendum mína dýpstu samúð... guð veiti ykkur styrk og hjálp til að takast á við þetta.
26. september 2008 klukkan 02:20
Anna Kristín Gunnlaugsdóttir skrifar ...
 
Kæru Líney, Gíggi, Hanna Stella, Alvilda María, Liney Mist og Lilja frænka, Okkar innilegustu samúðarkveðjur til okkar allra. Hugur okkar dvelur hjá ykkur á þessum erfiða tíma. Minningin um Hrafnhildi Lilju mun lifa um ókomna tíð
Anna, Marinó, Ólöf Jóna, María Björg og Aron Freyr.
26. september 2008 klukkan 19:42
Heida Odense skrifar ...
 
Kæru Liney, Giggi, Stella, Alvlda María, Líney Mist og Lilja frænka og ykkar nánustu skildmenni. Vildum votta ykkur samúð okkar, hugur okkar dvelur hjá ykkur á þessum erfiða tíma. Við hugsum til ykkar héðan frá Danmerku. Kveðja Heiða frænka, Jónsi, Guðmundur Ingi Jónsson og Grétar Óli Jónsson
26. september 2008 klukkan 20:15
Sigvaldi Einarsson skrifar ...
 
Kæra fjölskylda og vinir Hrafnhildar! Sendum okkar innilegustu samúðarkveðjur.
Góður guð styrki ykkur á þessum erfiðu tímum.
Kveðja Helga og Sissi!
28. september 2008 klukkan 12:31

Skrifa athugasemd

Ferðalagið mikla

Um ferðalagið...

Ég er að ferðast án tiltekinnar stefnu eða endadagsetningar.
Ég byrjaði á að yfirgefa Ísland þann 3. apríl 2008, fór til Ástralíu í rúma viku og eftir það til Dubai, UAE í þrjá mánuði. Núna er ég stödd í Dóminíska Lýðveldinu að stjórna litlu hippa hóteli. Ég bý á strönd sem heitir Kitebeach, Cabarete og er fræg fyrir íþrótt sem heitir brimbrettasvif "kitesurfing" eða "kiteboarding".
Ég verð hér alla vega út janúar 2009 en þá endurskoða ég málin því eftir það er allt óákveðið...

Ef þig langar að hitta mig einhvers staðar er um að gera að hafa samband og ég reyni mitt besta til að hitta þig á einhverjum skemmtilegum stað í heimunum ;)

Innskráningar kubbur