Aðalvalmynd

Könnun

Hvað heldur þú að hafi bitið mig?

Auglýsing

Teljari

  • Heimsóknir í dag: ...
  • Þennan mánuð: ...
  • Frá upphafi: ...

Til minningar um okkar ástkæru Hrafnhildi Lilju

24. september 2008 klukkan 14:40
Megi hún hvíla í friði og guð veri með henni og okkur öllum í gegnum þennan erfiða tíma.

Kæra fjölskylda og vinir Hrafnhildar Lilju,

Stofnaður hefur verið minningarsjóður til að minnast Hrafnhildar okkar.

Það er ekkert verra en að missa ungt fólk sem er í blóma lífsins. Mér finnst að enginn ætti að þurfa að ganga í gegnum svona mikla sorg, en það er víst ekki mitt að ákveða.

Við sem eftir erum hugsum í dag sem og ávallt til hennar, Liljunnar okkar. Hún var og verður elskuð af okkur öllum í gegnum allt lífið þar til hvert og eitt okkar hverfur á fund skaparans og hittir hana þar vonandi aftur. Hlæjandi og dansandi eins og hún var alltaf.

Við minnumst alls þess góða sem Hrafnhildur gaf af sér til að gera heiminn og okkur að betra fólki.

Þeir sem vilja minnast hennar er bent á minningarsjóðinn, reikningsnúmerið er 0537-14-609973 og kennitala 081079-5879

kveðja
Helena
estrella

Augun mín og augun þín,
ó þá fögru steina.
Þitt var mitt og mitt var þitt
þú veist hvað ég meina.
Hrafnhildur Lilja Georgsdóttir

Skrifa athugasemd

Ferðalagið mikla

Um ferðalagið...

Ég er að ferðast án tiltekinnar stefnu eða endadagsetningar.
Ég byrjaði á að yfirgefa Ísland þann 3. apríl 2008, fór til Ástralíu í rúma viku og eftir það til Dubai, UAE í þrjá mánuði. Núna er ég stödd í Dóminíska Lýðveldinu að stjórna litlu hippa hóteli. Ég bý á strönd sem heitir Kitebeach, Cabarete og er fræg fyrir íþrótt sem heitir brimbrettasvif "kitesurfing" eða "kiteboarding".
Ég verð hér alla vega út janúar 2009 en þá endurskoða ég málin því eftir það er allt óákveðið...

Ef þig langar að hitta mig einhvers staðar er um að gera að hafa samband og ég reyni mitt besta til að hitta þig á einhverjum skemmtilegum stað í heimunum ;)

Innskráningar kubbur