Aðalvalmynd

Könnun

Hvað heldur þú að hafi bitið mig?

Auglýsing

Teljari

  • Heimsóknir í dag: ...
  • Þennan mánuð: ...
  • Frá upphafi: ...

Þakkir

28. september 2008 klukkan 00:25
Mig langar að þakka ykkur sem komuð í kirkjuna núna á föstudaginn fyrir góða stund.
Að finna friðinn, kærleikann og ástina koma frá ykkur öllum hjálpaði mér, og vonandi ykkur líka, að takast á við sorgina og að byrja það erfiða verkefni sem bíður okkar allra, að halda áfram lífinu.
Mig langar sérstaklega að þakka henni sr. Jónu Hrönn fyrir sérlega falleg orð og söngurinn og organleikurinn hjá þeim Jóhanni og Önnu Siggur einstaklega fagur.

Eins hafa allar kveðjurnar sem hafa komið hingað inn á síðuna og á facebook, verið mér ómetanlegar að finna þessa samkennd og velvilja.

kveðja
Helena
estrella
Hrafnhildur Lilja Georgsdóttir
Rósa María skrifar ...
Ég kem hingað inn á hverjum degi og þótt að áskær vinkona okkar er farin þá mun ég ekki hætta að skoða þessa síðu. Veit að Lena okkar á eftir að halda henni við og lofa okkur að setja inn afmæliskveðjur og jólakveðjur hingað inn.

Hrafnhildur mín, ég sakna þín svo heitt og það er svo gaman að lesa bloggið þitt. Þú hefur gefið mér svo mikið, þú hefur kennt mér að lifa lífinu og að þótt að illa standi á þá er bara að brosa því að það lagast allt á endanum. Brosið þitt var svo smitandi og þegar ég hugsa til þín þá sé ég þig bara brosa því þannig man é geftir þér. Alveg sama hvað var að hjá mér þá hringdi ég altaf í þig meiri að segja útaf fáranlegustu hlutum og alltaf fékkstu mig til að lýta á björtu hliðarnar og brosa á ný. Þegar ég skoða myndir af þér þá get ég ekkert annað en brosað því það var það sem þú fékkst mig til að gera, en samt finn ég fyrir svo miklum söknuði og mikillrar gleði að hafa fengið að kynnast þér og átt allan þennan skemmtilega tíma með þér. Ég sakna þín svo sárt og mun aldrei gleyma öllu því sem þú gafst mér. Þú átt alltaf stóran part af mínu hjarta elsku vinkona. Ég elska þig. Rósa

Elsku Lena mín, þú hefur einni gefið mér svo margt. Þú gafst mér styrk í sorginni og því mun ég aldrei gleyma. Við höfum átt svo margar góðar og skemmtilegar stundir saman og eiga þær efitr að vera fleiri. Takk fyrir að vera til, þú ert svo yndisleg og ég elska þig. R'osa
16. október 2008 klukkan 22:36
Helena skrifar ...
 
elska þig líka fullt Rósin mín - vertu nú dugleg að nýta þér þinn innri kraft sem ég veit að þú hefur nóg af. Heyrumst fljótlega sæta mín
17. október 2008 klukkan 10:53

Skrifa athugasemd

Ferðalagið mikla

Um ferðalagið...

Ég er að ferðast án tiltekinnar stefnu eða endadagsetningar.
Ég byrjaði á að yfirgefa Ísland þann 3. apríl 2008, fór til Ástralíu í rúma viku og eftir það til Dubai, UAE í þrjá mánuði. Núna er ég stödd í Dóminíska Lýðveldinu að stjórna litlu hippa hóteli. Ég bý á strönd sem heitir Kitebeach, Cabarete og er fræg fyrir íþrótt sem heitir brimbrettasvif "kitesurfing" eða "kiteboarding".
Ég verð hér alla vega út janúar 2009 en þá endurskoða ég málin því eftir það er allt óákveðið...

Ef þig langar að hitta mig einhvers staðar er um að gera að hafa samband og ég reyni mitt besta til að hitta þig á einhverjum skemmtilegum stað í heimunum ;)

Innskráningar kubbur