Aðalvalmynd

Könnun

Hvað heldur þú að hafi bitið mig?

Auglýsing

Teljari

  • Heimsóknir í dag: ...
  • Þennan mánuð: ...
  • Frá upphafi: ...

Þakkarorð.

20. október 2008 klukkan 23:24

Kæru vinir og ættingjar.

Við viljum þakka ykkur fyrir allan þann stuðning og hlýhug sem okkur hefur verið sýndur vegna fráfalls okkar ástkæru Hrafnhildar Lilju.

Á erfiðum tímum sem þessum hefur verið ómetanlegt hve allir hafa verið boðnir og búnir til þess að hjálpa okkur, á einn eða annan hátt. Það er auðséð að Hrafnhildur átti yndislega vini, og vinir hennar hafa svo sannarlega staðið þétt við bakið á okkur.

Einnig hefur það gefið okkur styrk að lesa kveðjurnar frá ykkur, og viljum við þakka ykkur fyrir þær.

Með kveðju,
Líney, Georg, Hanna Stella, Alvilda María og Lilja amma.

 

Hrafnhildur Lilja Georgsdóttir
Hvernig er hægt að taka svona fallegt líf frá svo fallegri ungri konu, sem átti eftir að gera svo margt skemmtilegt á ferð sinni um heiminn.

Hinsta kveðja Georg ( Pabbi)
21. október 2008 klukkan 00:55
Rósa María skrifar ...
Það var svo lítið, það minnsta sem ég gat gert gerði ég. Hún gaf mér svo mikið og gerði fyrir mig og hún á svo mikið inni hjá mér. Þið eru jafn mikilvæg fyrir mér eins og hún Hrafnhildur Lilja var. Ég verð ávallt til staðar ef það er eitthvað sem ég get gert. Hún var svo falleg og sést það vel á ykkur hvaðan hún hafði það.
Takk fyrir allt þið eruð svo yndisleg. Ég get ekki ímundað mér sársaukan sem þið eruð að fara í geggnum, ég hugsa til ykkar á hverjum degi og þið verðið ávallt í bænum mínu og huga. Mér þykir rosalega vænt um ykkur. Það á engin að þurfa að horfa á eftir barninu sínu á þennan hátt og væri maður alveg til í að fara til baka og breyta því sem gerst hefur en engin fær þessu breytt. Við stöndum öll saman og við erum sterk, sérstaklega þið.
Farið vel með ykkur.
Bestu kveðjur Rósa María
21. október 2008 klukkan 19:36
Hanna Stella skrifar ...
 
Okkur þykir líka rosalega vænt um þig Rósa.
24. október 2008 klukkan 10:32
Júlía G Poulsen skrifar ...
Þessu er erfitt að kyngja, Hrafnhildar verður sárt saknað.. en ég minnist hennar sem vinkonu sem var góð við alla og alltaf brosandi.. Guð veri með ykkur elsku Giggi, Líney, Alvilda, Hanna, amma Lilja og allir hinir kveðja Júlía
24. október 2008 klukkan 14:36
Rósa María skrifar ...
Langaði bara til að kvita fyrir komu minni. Ég kem hingað nánast daglega til að lesa aftur það sem Hrafnhildur hefur skrifað og fallegar kveðjur frá vinum hennar og fjölskyldu.

Bestu kveðjur Rósa María
14. nóvember 2008 klukkan 16:59

Skrifa athugasemd

Ferðalagið mikla

Um ferðalagið...

Ég er að ferðast án tiltekinnar stefnu eða endadagsetningar.
Ég byrjaði á að yfirgefa Ísland þann 3. apríl 2008, fór til Ástralíu í rúma viku og eftir það til Dubai, UAE í þrjá mánuði. Núna er ég stödd í Dóminíska Lýðveldinu að stjórna litlu hippa hóteli. Ég bý á strönd sem heitir Kitebeach, Cabarete og er fræg fyrir íþrótt sem heitir brimbrettasvif "kitesurfing" eða "kiteboarding".
Ég verð hér alla vega út janúar 2009 en þá endurskoða ég málin því eftir það er allt óákveðið...

Ef þig langar að hitta mig einhvers staðar er um að gera að hafa samband og ég reyni mitt besta til að hitta þig á einhverjum skemmtilegum stað í heimunum ;)

Innskráningar kubbur