Ađalvalmynd

Könnun

Hvađ heldur ţú ađ hafi bitiđ mig?

Auglýsing

Teljari

  • Heimsóknir í dag: ...
  • Ţennan mánuđ: ...
  • Frá upphafi: ...

Komin heim úr útilegu í Oman

02. júní 2008 klukkan 18:32
Hæ allir

Var í útilegu í Oman um helgina, sem var algjör snilld !
Vildi bara láta vita af mér.
Set inn myndir og sögur á morgun :)

Góða nótt í bili,
Hrafnhildur Lilja
Hrafnhildur Lilja Georgsdóttir

Komnar inn myndir frá jeppa- og gönguferđ í Dubai

30. apríl 2008 klukkan 15:32
Setti inn nokkrar myndir úr ferð sem ég fór síðasta sunnudag með Graham, frá Kanada, og Xavier, frá Frakklandi sem býr í Kaupmannahöfn. Dagurinn var frábær í alla staði og félagsskapurinn snilld, sérstaklega ef maður spáir í því að ég hitti þá í fyrsta skiptið kvöldið áður...

Endilega commentið á myndirnar og takk fyrir að vera dugleg að skoða.

Hrafnhildur Lilja
estrella
Hrafnhildur Lilja Georgsdóttir

Arabarnir sofa bara og sofa

24. apríl 2008 klukkan 04:22
Hæ allir og allar

Það er allt í lagi með mig :)

Stórfurðulegt þó að ég er bara orkulausasta manneskja sem um getur hérna, sef og sef og sef :S
Fór á ströndina einn dag og brann skemmtilega sem gæti verið hluti af ástæðunni en samt, var svona fyrir það líka, ég er ekki að fatta þetta. Þess á milli er ég að skoða atvinnu auglýsingar og uppfæra ferilskránna mína, ætla að athuga hvort ég fæ vinnu hérna í smá tíma.

Set inn lengir færslu þegar ég næ að halda mér vakandi nógu lengi :)

Elska ykkur öll :)
Hrafnhildur Lilja
estrella
Hrafnhildur Lilja Georgsdóttir

Ferđafréttir !!! annađ vers

15. apríl 2008 klukkan 14:42
Hæ öll sömul

Var að tala við hana Hrafnhildi á Skype og msn. Hún kemst víst ekki inn á síðuna þar sem hún er, svo hér kemur smá update

Hrafnhildur er komin til Dubai í dag, var í gær í flugi á leiðinni með millilendingu í Kuala Lumpur.

Næsta námskeið hjá henni byrjar á morgun og mun það örugglega verða jafn gaman og þessi tvo sem hún er nú þegar búin með.

Hún var á leiðinni að skoða Dubai með fólki sem hún kynntist á námskeiðinu (það hefur nú aldrei tekið hana neitt sérstaklega langann tíma að kynnast fólki svo það kemur ekki á óvart)

Hún er allavega heil á húfi, glöð og hamingjusöm. Heyri vonandi í henni aftur fljótlega svo þá kemur vonandi færsla frá henni.


kveðja
Helena
estrella

P.s.  Hrafnhildur langaði að senda sérstaka batnaðarkveðju til ömmu - hún er öll að koma til - og biður alla um að hugsa hlýtt til hennar.
Hrafnhildur Lilja Georgsdóttir

Er ad fara a brimbretti

05. apríl 2008 klukkan 22:53
Vid erum komnar a Gold Coast og nuna er kl.8.50 am og eg er ad fara a Brimbretti med Craig, sem eg gisti hja og Robert, vini minum af facebook, sem eg rakst a strax i skraningunni. Storfurdulegt !!

Hef ekki meiri tima nuna, oldurnar bida, skrifa ferdasoguna liklega ekki fyrr en eftir namskeidid, thann 12. agust.

Er komin med Astralskt simanumer   00 61 048877 0851

Vinsamlegast ekki vekja mig a nottunni !!

Luv U,
Hrafnhildur Lilja
estrella
Hrafnhildur Lilja Georgsdóttir

Ferđafréttir !!! fyrsta vers

03. apríl 2008 klukkan 20:25
Ég var að heyra í stuttunni okkar núna rétt áðan. Hlæjandi

Það gengur allt vel, Kaupmannahöfn leið hjá eins og draumur og Frankfurt með sínu boltalandi er alveg að virka. Núna er 1 1/2 klst þangað til að farið verður aftur um borð og þá í lengsta fluglegginn, 11 klst til Singapor.

"Ég vona að það gangi allt vel og þetta flug verði svona American Airlines staðall eða hærriKoss" sagði stelpan þegar ég var að kveðja hana.

Vildi bara leyfa ykkur öllum að fylgjast með og ég set inn eitthvað meira þegar ég heyri í henni í Singapor.

kveðja
Helena estrella

Sumar stjörnur eru búnar að finna sitt heima, aðrar þurfa að leyta aðeins beturSvalur
Hrafnhildur Lilja Georgsdóttir

Ţá kveđ ég kalda klakann hvíta...

03. apríl 2008 klukkan 00:21
og skelli mér á brimbretti !!

Bakpokinn loksins tilbúinn, komin með leigjanda og allt komið á hreint!! (Helena, I luv U)

Hlakka alveg óstjórnlega til að takast á við allt þetta ferðalag með þeim Söru og Mörthu.

Vil þakka öllum þeim sem lögðu hönd á bóg við að hjálpa mér, þið vitið hver þið eruð, gefið ykkur klapp á bakið frá mér ;) þúsund þakkir og góðir draumar.

Best að koma sér í rúmið og ná þessum 3 og hálfum tíma í svefn...

Elska ykkur öll og hlakka til að sjá ykkur úti í hinum stóra heimi :)

Hrafnhildur Lilja, stjarna
Hrafnhildur Lilja Georgsdóttir

Stóra fréttin !!

25. mars 2008 klukkan 15:10
Hér kemur stóra fréttin eins og ég lofaði.... ég er búin að ákveða hvað ég "ætla að verða þegar ég verð stór" og er búin að kaupa mér one-way ticket til Ástralíu. Fer þann 3. apríl :)

Allir velkomnir í afmælis- og kveðjupartý á föstudaginn :)

Hafið uppl við mig fyrir frekari upplýsingar ;þ

Hrafnhildur Lilja
- flakkari með meiru -
Hrafnhildur Lilja Georgsdóttir

Halló heimur - hér kem ég!

19. mars 2008 klukkan 08:29
Jæja, setur maður af stað enn eitt bloggið en í þetta skiptið á mjög spennandi forsendum sem verða útskýrðar frekar um Páskana.

Ég fer norður um Páskana og vantar far suður á sunnudaginn svo ef einhver þekkir einhvern sem þekkir einhern ;)

Set inn mjög spennandi fréttir hér um Páskana!!

Heyrumst og sjáumst,
Hrafnhildur Lilja
Hrafnhildur Lilja Georgsdóttir

Ferđalagiđ mikla

Um ferđalagiđ...

Ég er ađ ferđast án tiltekinnar stefnu eđa endadagsetningar.
Ég byrjađi á ađ yfirgefa Ísland ţann 3. apríl 2008, fór til Ástralíu í rúma viku og eftir ţađ til Dubai, UAE í ţrjá mánuđi. Núna er ég stödd í Dóminíska Lýđveldinu ađ stjórna litlu hippa hóteli. Ég bý á strönd sem heitir Kitebeach, Cabarete og er frćg fyrir íţrótt sem heitir brimbrettasvif "kitesurfing" eđa "kiteboarding".
Ég verđ hér alla vega út janúar 2009 en ţá endurskođa ég málin ţví eftir ţađ er allt óákveđiđ...

Ef ţig langar ađ hitta mig einhvers stađar er um ađ gera ađ hafa samband og ég reyni mitt besta til ađ hitta ţig á einhverjum skemmtilegum stađ í heimunum ;)

Innskráningar kubbur