Aðalvalmynd

Könnun

Hvað heldur þú að hafi bitið mig?

Auglýsing

Teljari

  • Heimsóknir í dag: ...
  • Þennan mánuð: ...
  • Frá upphafi: ...

Þakkarorð.

20. október 2008 klukkan 23:24

Kæru vinir og ættingjar.

Við viljum þakka ykkur fyrir allan þann stuðning og hlýhug sem okkur hefur verið sýndur vegna fráfalls okkar ástkæru Hrafnhildar Lilju.

Á erfiðum tímum sem þessum hefur verið ómetanlegt hve allir hafa verið boðnir og búnir til þess að hjálpa okkur, á einn eða annan hátt. Það er auðséð að Hrafnhildur átti yndislega vini, og vinir hennar hafa svo sannarlega staðið þétt við bakið á okkur.

Einnig hefur það gefið okkur styrk að lesa kveðjurnar frá ykkur, og viljum við þakka ykkur fyrir þær.

Með kveðju,
Líney, Georg, Hanna Stella, Alvilda María og Lilja amma.

 

Hrafnhildur Lilja Georgsdóttir

Ferðalagið mikla

Um ferðalagið...

Ég er að ferðast án tiltekinnar stefnu eða endadagsetningar.
Ég byrjaði á að yfirgefa Ísland þann 3. apríl 2008, fór til Ástralíu í rúma viku og eftir það til Dubai, UAE í þrjá mánuði. Núna er ég stödd í Dóminíska Lýðveldinu að stjórna litlu hippa hóteli. Ég bý á strönd sem heitir Kitebeach, Cabarete og er fræg fyrir íþrótt sem heitir brimbrettasvif "kitesurfing" eða "kiteboarding".
Ég verð hér alla vega út janúar 2009 en þá endurskoða ég málin því eftir það er allt óákveðið...

Ef þig langar að hitta mig einhvers staðar er um að gera að hafa samband og ég reyni mitt besta til að hitta þig á einhverjum skemmtilegum stað í heimunum ;)

Innskráningar kubbur